fimmtudagur, maí 05, 2005

Jæja öss... ætli maður byrji ekki bara að blogga aftur?? Nr.1 Ég er í heilsuátaki!!! ...hingað til hafa 11.7 kg fokið og ég hika ekki við að monta mig því þetta er æðislegt! Ég er með einkaþjálfara og fer í spriklið 11 sinnum í viku... og mér finnst það bara minna mál en ég hélt! Nr.2 Í dag fór ég með pabba upp í Smáralind og fjárfesti í hjóli. Það hefur fengið nafnið Fagri Blakkur, a.k.a. Black Beauty, enda mjög fagurt! Yndislegt svart Pro Style kvenhjól með körfu og bögglabera... alveg draumahjólið og aðeins 3ja gíra, imbaproof! Og í tilefni af því ákvað ég að nota þetta template fyrir bloggið - Nóg um það í bili...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home