fimmtudagur, maí 12, 2005

...nálgast eins og óð fluga!!! Já, veistu... ég er með nammidag á sunnudögum, og síðustu sunnudaga hef ég alltaf ætlað mér að éta hitt og þetta sem ég leyfi mér ekki aðra daga en svo þegar ég vakna uppnumin á sunnudögum þá einhvern veginn fer þetta allt í chaos og ég gleymi öllu! Þannig að fyrir þennan sunnudag er ég komin með "To do(eat)" lista... hahaha... Úff, og það er sko komin vaffla úr vöffluvagninum á þann lista!!! ... eins og kannski margir vita þá kemur fyrir að ég, ásamt fleirum, kalla Báru mína Boris og um daginn þegar ég var að keyra ætlaði ég að senda henni eitthvað þvílíkt slúður sms ...skrolla niður í símanum eins og ég geri vanalega og finn "Boris" og ýti á enter, lít svo af tilviljun á símann og sé að þetta er ekkert númerið hennar Báru heldur einkaþjálfarinn minn... hahaha ég breytti nú nafninu snarlega - held að honum hefði brugðið dáldið hefði hann fengið eitthvað voða djúsí sms frá mér upp úr þurru!!?! - En jæja, ég ætla að drífa mig í spriklið...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home