miðvikudagur, febrúar 09, 2005

Miðvikudagur til mæðu (eða var það mánudagur?) Veik heima, 3.daginn í röð =o( Kata... þurfum við ekki að fara að skella okkur aftur á skauta?!?!?! - Ég fann nebblega bloggfærslu um síðustu skautaferð okkar fyrir nákvæmlega 2 árum síðan... hahahaha

sunnudagur, febrúar 09, 2003 Ég er officially búin að finna mér nýtt áhugamál... að renna mér á skautum ;) Ég fór í dag með lillebror og Kötu í Skautahöllina og við skemmtum okkur bara svona helvíti vel. Ég datt 2svar mjög harkalega og er með mjög stórar bólgur á báðum hnjám og marin á öðru lærinu, en ég meina...it's worth it! Ég skautaði beint á eitthvað krakkagrey í eitt skiptið, og þar sem beygjuhæfileikar mínir voru hálflélegir tók ég bara utan um hann, sneri okkur í hring og lét hann svo niður... Þegar hann sá mig koma á blússandi ferð var svipurinn eins og ég væri óð belja á leiðinni yfir hann en svo brosti hann bara þegar ég lét hann niður og skautaði í burtu. Skautarnir voru samt ekki góðir, vond lykt og mig verkjaði undan þeim... not good, not good... Ritað af Rosie G. kl. 23:55

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home