miðvikudagur, desember 03, 2003

Kvöldskóli fyrir menn Hvert námskeið er 10 vikur og lýkur með skriflegu prófi. Nemendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðsins, sem þeir geta framvísað á alþjóðlegum markaði. Námskeiðsnr: Námskeiðslýsing Haldið 015501 Hvernig á að smyrja brauðsneið án þess að setja eldhúsið á hvolf? Skref fyrir skref, sett fram á myndrænan hátt Mánudaga kl.17.00-18.30 015402 Klósettpappír- er það satt að maður geti sjálfur sett nýja rúllu á klósettpappírshaldarann? Verkleg æfing á verkstæðinu. Þriðjudaga kl.18.00-20.00 035603 Á að lyfta klósettsetunni áður en maður pissar? Er mögulegt að pissa án þess að hitta á gólfið, veggina eða setuna? Verklegar æfingar. Mánudaga kl.18.30-20.00 035604 Grundvallarmunur á baðherbergisgólfinu og þvottakörfunni Mynda-, ferla- og skipuritasýning. Föstudaga kl.16.30-21.30 035605 Er mögulegt að vera góður elskhugi til lengri tíma? Farið verður í grundvallarmuninn á milli "einnar-nætur-gamans" og innhaldsríks kynlífs. Þetta námskeið er í 3 þrepum: "Það þarf meira en typpi til", "Tímasetning og alúð í verki", "Konur elska með öllum kroppnum". Skriflegt próf og meðmæli "ástkonu" eru nauðsynleg til að færast á milli þrepa. Mánudaga kl.17.30-19.00 052206 Tilvistarkreppa - hefur þú tapað betri helmingnum af sjálfum þér? Stuðningshópar og heimsóknir til íþróttamanna sem hætt hafa að spila. Laugardaga kl.19.00-20.30 072407 Lært að leita að hlutum. Byrjað verður á því að fara í gegnum hvar hlutir eru vanalega geymdir og stress- og öskurviðbrögð æfð. Leikþættir og raunverulegar lífsreynslusögur. Miðvikudaga kl.18.00-21.00 025408 Að gefa konunni blóm og tækifærisgjafir hefur ekki skaðleg áhrif á sjálfið. Sett fram á mynd- og hljóðformi. Föstudaga kl.17.00-20.00 011709 Heilbrigðir menn spyrja til vegar þegar þeir villast. Gestafyrirlesarar og dæmi úr raunveruleikanum. Miðvikudaga kl.19.30-21.00 102210 Konan undir stýri. Er mögulegt að sitja rólegur og hreyta ekki í hana ókvæðisorðum í föstudagsumferðinni? Bílhermir. Mánudaga kl.18.30-20.00 101811 Hugsum í víddum. Farið verður í grunnmismun á milli mömmu og kærustu/konu. Stuðst við handbók í byrjun, byggist annars á hlutverkaleik. Þriðjudaga kl.20.00-21.00 102512 Er hægt að eyða degi í Kringlunni með fjölskyldunni? Afslöppunnaraðferðir, hugleiðsla og öndunaræfingar. Föstudaga kl.15.00-21.00 171513 Hvert er samhengið á milli leikja í ensku deildinni og merkisdaga í fjölskyldunni? Gerð persónulegra samhengiskorta og "Til hamingju..."æfingar. Þriðjudaga kl.18.00-19.30 Skráningarblað Nafn: Hjúskaparstaða: Ár frá því að foreldrahús var yfirgefið: Fyrri kunnátta: Ryksuga Ná í börnin Uppvask Ná í börnin á réttum tíma Þvottur Grunnfærni í innkaupum Búa um rúm Leiðbeinendur munu hafa samband við umsækjendur, til ráðleggingar um hvaða námskeiðaval og hvaða stig hentar einstaklingnum Námskeiðshaldarar Þessa skemmtilegu lesningu sendi Hildur mér í lok október og ég ákvað bara að skella henni hérna á bloggið svo fleiri geti lesið:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home