miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Louisa snillingur sendi mér þessa brilliant sögu áðan... ég ákvað að smella henni bara hérna inn!

Það var sólríkur morgunn í skóginum þegar bangsafjölskyldan reis úr rekkju einn daginn. Bangsi litli tölti inn í eldhús, settist við morgunverðarborðið, leit ofan í litlu skálina sína og sá að hún var tóm. "Hver hefur borðað grautinn minn?" spurði hann, ámátlegum rómi. Þá kom bangsapabbi, hlammaði sér í sætið sitt, leit í stóru skálina sína og sá að hún var líka tóm. "Hver hefur borðað grautinn minn?" urraði hann. Bangsamamma leit upp frá eldhúsbekknum og sagði: "Ó mæ god, hve oft þurfum við að fara í gegn um þetta?!? ÉG vaknaði fyrst allra! ÉG vakti ykkur hina! ÉG hitaði kaffið! ÉG tæmdi uppþvottavélina og raðaði upp í skápa! ÉG lagði á borðið! ÉG hleypti kettinum út, tæmdi kattabakkann og gaf kisu að éta og drekka! ÉG fór út og sótti blaðið! Og nú, þegar þið drattist loksins á fætur og parkerið ykkar súru trýnum við morgunverðarborðið... hlustið vel, þetta segi ég bara eitt skipti í viðbót:
ÉG ER EKKI BÚIN AÐ ELDA HELVÍTIS GRAUTINN ENNÞÁ!!!"

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home