föstudagur, desember 31, 2004

Last day... Ég hef nú ekki mikið að segja, en ég varð að skrifa eitthvað svona í tilefni dagsins. Ég sit uppi í bókaherbergi í tölvunni hans pabba, mín er búin að vera dálítið veik í smá tíma - fer ekkert rosalega mikið í gang *hóst*... Ég fór á "The Incredibles" í fyrradag með vinnunni minni, og það var mjög áhugavert... að fara með 20 börn í bíó... hehe! Reyndar í fyrsta skipti sem ég sofna í bíó...

Heyrðu, svo eru það bara frakettur í kvöld, eitthvað svona ?
Ef ég skrifa ekkert meira í dag þá óska ég öllum bara gleðilegs árs og friðar og þakka fyrir allt þetta gamla og góða. Gangið svo öll hægt um gleðinnar dyr og skemmtið ykkur vel í kvöld! kveðja, Rósa... helmössuð með Colgate bros eins og þessi

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home